Persónuvernd og upplýsingaöryggi hjá Deloitte
- Full-time
- Field of interest: Audit & Assurance
- Level of hire: Graduate hire
Company Description
Deloitte er leiðandi þjónustuveitandi á sviði endurskoðunar og reikningsskila, upplýsingatækniráðgjafar, fjármálaráðgjafar, áhætturáðgjafar, skatta– og lögfræðiráðgjafar og tengdrar þjónustu. Alþjóðlegt net aðildarfélaga okkar og tengdra félaga spannar meira en 150 lönd og landsvæði (sameiginlega vísað til sem „félög Deloitte"). Hjá Deloitte starfa um 460.000 sérfræðingar sem stefna saman að því að veita ávallt framúrskarandi þjónustu þar af eru 360 á Íslandi.
Job Description
Deloitte leitar að einstaklingum með brennandi áhuga á persónuvernd og upplýsingaöryggi.
Langar þig að taka þátt í að umbreyta því hvernig fyrirtæki vinna og hafa áhrif á störf fólks til hins betra? Sem meðlimur í persónuverndarteymi Deloitte getur þú með beinum hætti aukið virði og tilgang viðskiptavina með því að breyta ferlum og vinnuaðferðum fólks. Þetta gerir þú t.d. með því að veita ráðgjöf, sinna greiningar- og úttektarvinnu og þróa, aðlaga og innleiða verklag sem auðveldar viðskiptavinum okkar m.a. að starfa eftir viðeigandi lögum og reglum sem um starfsemi þeirra gilda.
Við leitum að starfsfólki sem hugsar í lausnum, er tilbúið að bretta upp ermar og taka þátt í umbótum á því hvernig viðskiptavinir okkar vinna.
Helstu verkefni:
Veita opinberum aðilum og fyrirtækjum alhliða ráðgjöf á sviði persónuverndar og annarrar löggjafar á sviði net- og upplýsingaöryggis
Vera í beinum samskiptum við viðskiptavini, meta og greina þarfir þeirra, ferla og mikilvægar áskoranir
Veita ráðgjöf um túlkun á löggjöf, reglum, stöðlum og tilmælum og úrlausn álitaefna
Sinna verkefnum sem tengjast útvistuðu hlutverki persónuverndarfulltrúa sem Deloitte sinnir fyrir viðskiptavini sína
Qualifications
Bakgrunnur og reynsla:
Þú ert lausnamiðuð/aður, sjálfstæður og getur haldið mörgum boltum í gangi í einu
Þú er jákvæð/ur og hefur gaman af því að takast á við ný vandamál og leysa
Þú býrð yfir greiningarhæfileikum og ert nákvæm/ur í því sem þú tekur þér fyrir hendur
Þú hefur gaman af því að vinna með fólki í hóp og það gefur þér orku að taka þátt í öflugri teymisvinnu
Þú ert með viðeigandi menntun, s.s. í lögfræði og sérhæfingu í persónuvernd
Hefur þekkingu á innlendum og evrópskum persónuverndarlögum og lagaframkvæmd á því sviði
Skilningur og áhugi á öryggis- og upplýsingaöryggismálum og regluverki á því sviði er kostur
Þú býrð yfir metnaði til að skila af þér framúrskarandi afurðum
Þú býrð yfir löngun til að skapa frábæra upplifun fyrir viðskiptavini
Mjög góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti er skilyrði, og kunnátta í norðurlandamáli er kostu
Additional Information
Um teymið
Teymið okkar er hluti af Áhætturáðgjöf Deloitte og samanstendur af reynslumiklum sérfræðingum með fjölbreyttan bakgrunn og reynslu. Við vinnum saman sem ein heild og eigum í góðu samstarfi með öðrum sérfræðingum Deloitte, bæði innanlands og erlendis.
Starfsþróun þín:
Við starfsupphaf færðu leiðbeinanda sem kemur þér inn í starfið (Buddy-kerfi)
Þú færð þjálfun og stuðning frá reyndum sérfræðingum í teyminu þínu
Þú verður með Coach sem aðstoðar þig við markmiðasetningu og starfsþróun
Þú lærir mikið á þeim fjölbreyttu verkefnum sem þú tekur að þér hjá viðskiptavinum í ólíkum geirum.
Þú fylgist vel með á þínu fagsviði og við viljum að sama skapi styðja við þinn vöxt með símenntunartækifærum.
Ef þú hefur vilja til að vaxa, metnað til að þróast í starfi og hefur færni til að setja þig fljótt inn í ólíka málaflokka, þá viljum við endilega heyra frá þér.
Að auki bjóðum við upp á:
Frábært mötuneyti með niðurgreiddum morgunmat og hádegismat.
Veglegan líkamsræktarstyrk, virkt starfsmannafélag og gott félagslíf
Fyrirmyndar aðbúnað starfsfólks í nýjum höfuðstöðvum fyrirtækisins á Dalvegi
Sjálfboðastarf til áhrifa – launaður dagur til að sinna sjálfbærniverkefnum
Fjölbreytt áhugamál samstarfsfélaga þvert á félagið t.d. hlaupahópur, golfklúbbur, fótbolti í hádeginu, og leikjaherbergi svo eitthvað sé nefnt
Við hlökkum til að fá umsóknina þína. Nánari upplýsingar um starfið veita Sara Fönn Jóhannesdóttir ([email protected]) og Ásta Þyrí Emilsdóttir ([email protected]).
Tekið er á móti umsóknum (ferilskrá og kynningarbréfi) til og með 25. maí 2025
Vilt þú hafa áhrif? Hjá Deloitte skiptir þitt framlag máli því saman, sem ein heild, vinnum við að því að hafa áhrif á viðskiptavini, samstarfsfélaga og samfélag. Þú færð tækifæri til að taka þátt í fjölbreyttum verkefnum þvert á svið, starfsstöðvar og lönd, auka hæfni þína og færni og hafa góðan stuðning til vaxtar og þróunar í starfi.