Bókari

  • Full-time
  • Field of interest: Finance & Accounting
  • Level of hire: AA Entry Level

Company Description

Deloitte er stærsta ráðgjafar- og endurskoðunarfyrirtæki heims, með um 457.000 starfsmenn í yfir 150 löndum. Hjá Deloitte á Íslandi starfa um 360 starfsmenn, allt sérfræðingar á sínum sviðum, þar á meðal endurskoðun, tækniráðgjöf, fjármálaráðgjöf, áhætturáðgjöf, skatta- og lögfræðiráðgjöf og viðskiptalausnum.

Job Description

Deloitte í Snæfellsbæ leitar að öflugum og drífandi einstakling í spennandi og krefjandi starfs bókara og launafulltrúa. Við bjóðum viðskiptavinum hérlendis og erlendis m.a. upp á sjálfvirknivæðingu á fjármálaferlum, bókhalds-, launa- og reikningshaldsþjónustu, rekstrargreiningu og aðra ráðgjöf á sviði fjármálaferla.

Qualifications

Við leitum að metnaðarfullum einstaklingi með brennandi áhuga á öllu sem við kemur bókhaldi, reikningshaldi og vilja til að þróast í starfi. 

Þinn bakgrunnur, reynsla og hæfni: 

  • Reynsla af bókhaldi, uppgjörum og/eða launavinnslu, kostur en ekki skilyrði
  • Reynsla af DK launakerfi, Business Central launakerfi, H3 eða Kjarna, kostur en ekki skilyrði
  • Viðurkenndur bókari, kostur en ekki skilyrði
  • Góð færni í Excel
  • Sjálfstæð og öguð vinnubrögð
  • Góð samskiptahæfni, jákvæðni og rík þjónustulund.

Additional Information

Starfsþróun  

  • Við starfsupphaf færðu leiðbeinanda sem kemur þér inn í starfi (Buddy-kerfi)
  • Þú færð þjálfun og stuðning frá reyndum sérfræðingum í teyminu þínu
  • Þú verður með coach sem aðstoðar þig við að þróa þig áfram í starfi
  • Þú lærir mikið á þeim fjölbreyttu verkefnum sem þú tekur að þér hjá viðskiptavinum í ólíkum geirum.
  • Þú fylgist vel með þínu fagsviði og við viljum að sama skapi styðja við þinn vöxt með símenntunartækifærum

Að auki bjóðum við upp á

  • Veglegan líkamsræktarstyrk, virkt starfsmannafélag og gott félagslíf
  • Sjálfboðastarfs til áhrifa – launaður dagur til að sinna sjálfbærniverkefnum
  • Fyrirmyndar aðbúnað og vinnuaðstöðu
  • Niðurgreiddan hádegismat

 

Við hlökkum til að heyra frá þér! 

Nánari upplýsingar um starfið veitir Marinó Mortensen ([email protected]), yfirmaður Deloitte í Snæfellsbæ, og  Ásta Þyri Emilsdóttir ([email protected]), Verkefnastjóri í mannauðsdeild. Umsóknarfrestur er til og með 21. Maí. Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf eigi síðar en 1. ágúst 2025. Tekið er á móti umsóknum í gegnum heimasíðu Deloitte, www.deloitte.is.

Vilt þú hafa áhrif? Hjá Deloitte skiptir þitt framlag máli því saman, sem ein heild, vinnum við að því að hafa áhrif á viðskiptavini, samstarfsfélaga og samfélag. Þú færð tækifæri til að taka þátt í fjölbreyttum verkefnum þvert á svið, starfsstöðvar og lönd, auka hæfni þína og færni og hafa góðan stuðning til vaxtar og þróunar í starfi. 

Privacy Policy