Framendaforritari í Tækniráðgjöf

  • Full-time
  • Field of interest: Technology, Transformation & Data
  • Level of hire: Experienced hire

Company Description

Deloitte er leiðandi þjónustuveitandi á sviði endurskoðunar og reikningsskila, upplýsingatækniráðgjafar, fjármálaráðgjafar, áhætturáðgjafar, skatta– og lögfræðiráðgjafar og tengdrar þjónustu. Alþjóðlegt net aðildarfélaga okkar og tengdra félaga spannar meira en 150 lönd og landsvæði (sameiginlega vísað til sem „félög Deloitte"). Hjá Deloitte starfa um 457.000 sérfræðingar sem stefna saman að því að veita ávallt framúrskarandi þjónustu, þar af eru 360 á Íslandi.

Job Description

Við leitum að framendaforritara með reynslu í faginu og áhuga á ráðgjöf, sem getur hlaupið hratt með okkur í núverandi og komandi verkefnum.  

Í framenda notum við m.a. 

  • TypeScript, Javascript, React, Next.js, GraphQL 
  • GitHub, Docker 
  • Cypress e2e 
  • Storybook 
  • Þekking á REST, JSON APIs og GraphQL  

Helstu verkefni  

  • Þróun hugbúnaðar í samræmi við greiningu og hönnun  
  • Fást við greiningu á villum og úrlausn þeirra 
  • Kóðarýni hjá og með öðrum forriturum 
  • Fylgjast vel með þróun og tækninýjungum  
  • Vinna með breiðum og færum hópi reyndra ráðgjafa hérlendis og/eða erlendis 

Qualifications

  • Háskólamenntun á sviði verk-, tölvunar-, kerfisfræði eða önnur menntun sem nýtist í starfi 
  • Tveggja til þriggja ára reynsla af forritun 
  • Nákvæmni og metnaður til að skila af þér góðu verki 
  • Þú hefur gaman af því að takast á við og leysa áskoranir 
  • Þú getur unnið sjálfstætt en virkar vel í teymi enda býrðu yfir samskiptafærni 
  • Átt auðvelt með að fara á milli verkefna og halda nokkrum boltum á lofti í einu 

Additional Information

Um teymið  

Forritarar eru hluti af Tækniráðgjafarsviði Deloitte. Við vinnum þvert á svið hérlendis og með Deloitte erlendis. Á sviðinu starfar úrvals lið sérfræðinga með fjölbreyttan bakgrunn sem leggja sig fram í þjónustu við viðskiptavini.   

Starfsþróun þín  

  • Við starfsupphaf færðu leiðbeinanda sem kemur þér inn í starfið (Buddy-kerfi)
  • Þú færð þjálfun og stuðning frá reyndum sérfræðingum í teyminu þínu
  • Þú verður með Coach sem aðstoðar þig við að þróa þig áfram í starfi
  • Þú lærir mikið á þeim fjölbreyttu verkefnum sem þú tekur að þér hjá viðskiptavinum í ólíkum geirum.
  • Þú fylgist vel með á þínu fagsviði og við viljum að sama skapi styðja við þinn vöxt með símenntunartækifærum.

Ef þú hefur vilja til að vaxa, metnað til að þróast í starfi og hefur færni til að setja þig fljótt inn í ólíka málaflokka, þá viljum við endilega heyra frá þér.

Að auki bjóðum við upp á: 

  • Frábært mötuneyti með niðurgreiddum morgunmat og hádegismat.
  • Veglegan líkamsræktarstyrk, virkt starfsmannafélag og gott félagslíf
  • Fyrirmyndar aðbúnað starfsfólks í nýjum höfuðstöðvum fyrirtækisins á Dalvegi
  • Sjálfboðastarf til áhrifa – launaður dagur til að sinna sjálfbærniverkefnum
  • Fjölbreytt áhugamál samstarfsfélaga þvert á félagið t.d. hlaupahópur, fótbolti í hádeginu, og leikjaherbergi svo eitthvað sé nefnt

 

Nánari upplýsingar um starfið veitir Ylfa Hafsteinsdóttir, Senior Consultant ([email protected]).

Tekið er á móti umsóknum til og með 9.maí 2025.  Öllum umsóknum er svarað.  

Vilt þú hafa áhrif? Hjá Deloitte skiptir þitt framlag máli því saman, sem ein heild, vinnum við að því að hafa áhrif á viðskiptavini, samstarfsfélaga og samfélag. Þú færð tækifæri til að taka þátt í fjölbreyttum verkefnum þvert á svið, starfsstöðvar og lönd, auka hæfni þína og færni og hafa góðan stuðning til vaxtar og þróunar í starfi. 

Privacy Notice