Útstillingahönnuður

  • Full-time

Company Description

Sem einn af stærstu smásölum tískufatnaðar í heiminum býður H&M endalaus atvinnutækifæri. Umhverfi hraða og erils með mikilli fjölbreytni – staður þar sem viðskiptavinurinn er alltaf miðpunktur athyglinnar.

En það sem gerir okkur virkilega áberandi eru hinir ótrúlegu starfsmenn okkar. Frá glæsilegum söluráðgjöfum og útstillingarhönnuðum til tölvusnillinga og skipuleggjenda með viðskiptavit – allir okkar starfsmenn deila miklum metnaði og þeirri skoðun að allt sé mögulegt, svo ekki sé minnst á næmu auga fyrir tísku. Það er þeim að þakka að við höfum vaxið – með yfir 4,972 verslanir á meira en 73 mörkuðum um allan heim. Og við höldum áfram að vaxa.

Kíktu á hm.com fyrir nánari upplýsingar eða  @HM fyrir innblástur.

Job Description

Gerðu verslunina flotta & viðskiptavinina glæsilega

Visual Merchandiser er starf fyrir skapandi og þróttmikið fólk. Þú elskar tísku og veist allt um nýjustu sveiflur og línur. Þú ert sérfræðingur í stíl og framsetningu á tískufatnaði. Viðskiptavinurinn er í forgrunni í öllu starfi þínu og þíns teymis. Þú ert skapandi í markaðssetningu og getur skapað spennandi, markvisst og notalegt verslunarumhverfi fyrir alla viðskiptavini.

Það er engu logið um að tíska er þín ástríða. Þú fylgist með öllu sem gerist og hefur næmt auga fyrir því hvernig hægt er að sýna og kynna línurnar okkar á skemmtilegan og söluhvetjandi hátt. Við leitum að manneskju sem kann að vinna með öðrum, er hugmyndarík og frjó og er öðrum hvatning og innblástur. Þú nýtur þess að vera þar sem hlutirnir gerast og engir tveir vinnudagar eru eins.

Starf þitt er að kynna flíkurnar okkar á aðlaðandi hátt og fylgja sölutengdum viðburðum eftir til að tryggja að vörurnar okkar seljist vel. Þú sérð um gluggaútstillingar og útstillingar í verslunum — og sérð til þess að verslunin sé lífleg og nýtískuleg, á allan hátt. Þú þjálfar einnig og leiðbeinir samstarfsmönnum í versluninni í sjónrænni vörukynningu og útstillingum á flíkum. Þig langar að gera hverja heimsókn viðskiptavina og öll kynni þeirra af bæði vörumerkinu okkar og starfsfólkinu eftirminnileg og áhugaverð. Markmið þitt er að hjálpa öllum að bæði líta vel út og líða vel..

Privacy Policy