Ráðgjafi í netöryggisteymi Deloitte

  • Full-time
  • Field of interest: Audit & Assurance
  • Level of hire: Experienced hire

Company Description

Deloitte er leiðandi þjónustuveitandi á sviði endurskoðunar og reikningsskila, upplýsingatækniráðgjafar, fjármálaráðgjafar, áhætturáðgjafar, skatta– og lögfræðiráðgjafar og tengdrar þjónustu. Alþjóðlegt net aðildarfélaga okkar og tengdra félaga spannar meira en 150 lönd og landsvæði (sameiginlega vísað til sem „félög Deloitte"). Hjá Deloitte starfa um 460.000 sérfræðingar sem stefna saman að því að veita ávallt framúrskarandi þjónustu þar af eru 360 á Íslandi.

 

Job Description

Við leitum að sérfræðingi með brennandi áhuga á netöryggi og stafrænni þróun til að ganga til liðs við vaxandi teymi  sérfræðinga okkar.  

Við veitum heildstæða netöryggisráðgjöf með áherslu á stjórnun, áhættustýringu og úttektir. Við leitum að einstaklingi sem hugsar í lausnum, er tilbúinn að bretta upp ermar og taka þátt í að efla öryggisvarnir viðskiptavina og draga úr netöryggisáhættu.  

 

Helstu verkefni og ábyrgð 

Meðal verkefna sem netöryggisráðgjöf sinnir eru eftirfarandi: 

  • Alhliða ráðgjöf og stefnumótun á sviði netöryggis og rekstrarsamfellu 
  • Mat á stjórnarháttum og stöðu netöryggisráðstafana 
  • Úttektir og gloppugreiningar á fylgni við lög, reglur og staðla  
  • Áhættumat og áhættustýring netöryggisáhættu 
  • Stjórnendaþjálfun og fræðsla  

Sem hluti af netöryggisteymi Deloitte muntu aðstoða viðskiptavini við að innleiða, efla og fylgja netöryggiskröfum og styðja þá í gegnum áskoranir sem leiða af breyttum netógnum og rekstrarumhverfi ásamt því að vinna að bættum viðnámsþrótti og rekstrarsamfellu.  

Hjá Deloitte færð þú tækifæri til að vera hluti af öflugu netöryggissamfélagi á alþjóðavísu, vinna með leiðandi fyrirtækjum og stofnunum, kynnast fjölbreyttum atvinnugreinum og taka þátt í netöryggisverkefnum sem skipta sköpum fyrir rekstrarsamfellu og traust viðskiptavina. 

Qualifications

Menntunar- og hæfniskröfur 

  • Háskólamenntun eða sambærileg reynsla sem nýtist í starfi 
  • Þekking og reynsla af netöryggismálum, regluverki og/eða stjórnunarkerfum s.s. DORA, NIS2, CRA, AI Act og NIST  
  • Góð greiningarhæfni 
  • Mjög góð samskiptafærni og vilji til samvinnu  
  • Fagmennska, sjálfstæði og vönduð vinnubrögð  
  • Hæfni í að setja fram skýran, hnitmiðaðan og faglegan texta og miðla upplýsingum á skiljanlegan hátt 
  • Áhugi á gervigreind, áhættustýringu og innri/ytri úttektum  
  • Gott vald á íslensku og ensku, bæði töluðu og rituðu máli 
  • Viðeigandi vottanir (ISO27001; CISSP, CISA, CISM, Security+  eða sambærilegar vottanir) eru kostur 
  • Metnaður til að veita framúrskarandi þjónustu og skapa góða upplifun fyrir viðskiptavini 

Additional Information

Um teymið 

Teymið samanstendur af reynslumiklum sérfræðingum með fjölbreyttan bakgrunn og reynslu. Við vinnum saman sem ein heild og eigum í góðu samstarfi við  aðra sérfræðinga Deloitte, bæði innanlands og erlendis.      

Starfsþróun þín 

Við trúum því að það er ávallt rými til að læra. Það kann enginn allt frá fyrsta degi. Þú færð viðeigandi þjálfun og munt vaxa með teymunum okkar. Þú lærir mikið á þeim fjölbreyttu verkefnum sem þú tekur að þér hjá viðskiptavinum í ólíkum geirum, þú fylgist vel með á þínu fagsviði og við að sama skapi viljum styðja við þinn vöxt með símenntunartækifærum. 

 

Að auki bjóðum við upp á: 

  • Frábært mötuneyti með niðurgreiddum morgunmat og hádegismat.
  • Veglegan líkamsræktarstyrk, virkt starfsmannafélag og gott félagslíf
  • Góðan aðbúnað í höfuðstöðvum okkar á Dalvegi
  • Styrki til nýbakaðra foreldra
  • Sjálfboðastarf til áhrifa – launaður dagur til að sinna sjálfbærniverkefnum
  • Fjölbreytt áhugamál samstarfsfélaga þvert á félagið t.d. hlaupahópur, fótbolti í hádeginu og leikjaherbergi  

Við hlökkum til að fá umsóknina þína.

Nánari upplýsingar um starfið veita Alma Tryggvadóttir ([email protected]) og Helen Breiðfjörð  ([email protected]). 

Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf sem fyrst. Tekið er á móti umsóknum í gegnum heimasíðu Deloitte, www.deloitte.is, til og með 11. júní 2026    

 

Vilt þú hafa áhrif? Hjá Deloitte skiptir þitt framlag máli því saman, sem ein heild, vinnum við að því að hafa áhrif á viðskiptavini, samstarfsfélaga og samfélag. Þú færð tækifæri til að taka þátt í fjölbreyttum verkefnum þvert á svið, starfsstöðvar og lönd, auka hæfni þína og færni og hafa góðan stuðning til vaxtar og þróunar í starfi. 

Privacy Notice