Ráðgjafi í áhætturáðgjöf Deloitte
- Full-time
- Field of interest: Audit & Assurance
- Level of hire: Graduate hire
Company Description
Deloitte er leiðandi þjónustuveitandi á sviði endurskoðunar og reikningsskila, upplýsingatækniráðgjafar, fjármálaráðgjafar, áhætturáðgjafar, skatta– og lögfræðiráðgjafar og tengdrar þjónustu. Alþjóðlegt net aðildarfélaga okkar og tengdra félaga spannar meira en 150 lönd og landsvæði (sameiginlega vísað til sem „félög Deloitte"). Hjá Deloitte starfa um 460.000 sérfræðingar sem stefna saman að því að veita ávallt framúrskarandi þjónustu þar af eru 360 á Íslandi.
Við leitum að einstaklingi sem hefur áhuga á upplýsingatækni, gögnum og rekstri fyrirtækja, býr yfir greiningarhæfni og hefur metnað til að þróast í starfi.
Job Description
Helstu verkefni:
Verkefnin felast í úttektum á eftirlitsþáttum, mati á UT-tengdri áhættu og greiningu á fylgni við lög og reglur tengdum öryggi og rekstri upplýsingakerfa.
Sem hluti af IDA (IT, Data & Analytics) teymi Deloitte muntu vinna að verkefnum sem leggja áherslu á gervigreind, gagnagreiningu og nýtingu gagna til að bæta eftirlit og ákvarðanatöku.
Hjá okkur færð þú tækifæri til að vinna með leiðandi fyrirtækjum og stofnunum, kynnast fjölbreyttum atvinnugreinum og taka þátt í verkefnum sem tengjast bæði hefðbundnu innra eftirliti og framtíð upplýsingatækni.
Qualifications
Hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi, s.s. verkfræði, viðskiptafræði, tölvunarfræði eða sambærileg menntun
- Greiningarhæfni
- Mjög góð samskiptafærni og vilji til samvinnu og að stuðla að góðum starfsanda
- Fagmennska, sjálfstæð og vönduð vinnubrögð
- Þekking á upplýsingatækni kostur
- Áhugi á gervigreind og gagnagreiningu
- Viðeigandi reynsla sem nýtist í starfi
- Gott vald á íslensku og ensku, bæði töluðu og rituðu máli
Additional Information
Um teymið
Teymið samanstendur af reynslumiklum sérfræðingum með fjölbreyttan bakgrunn og reynslu. Við vinnum saman sem ein heild og eigum í góðu samstarfi við aðra sérfræðinga Deloitte, bæði innanlands og erlendis.
Starfsþróun þín
Við trúum því að það er ávallt rými til að læra. Það kann enginn allt frá fyrsta degi. Þú færð viðeigandi þjálfun og munt vaxa með teymunum okkar. Þú lærir mikið á þeim fjölbreyttu verkefnum sem þú tekur að þér hjá viðskiptavinum í ólíkum geirum, þú fylgist vel með á þínu fagsviði og við að sama skapi viljum styðja við þinn vöxt með símenntunartækifærum.
Að auki bjóðum við upp á:
- Frábært mötuneyti með niðurgreiddum morgunmat og hádegismat.
- Veglegan líkamsræktarstyrk, virkt starfsmannafélag og gott félagslíf
- Góðan aðbúnað í höfuðstöðvum okkar á Dalvegi
- Styrki til nýbakaðra foreldra
- Sjálfboðastarf til áhrifa – launaður dagur til að sinna sjálfbærniverkefnum
- Fjölbreytt áhugamál samstarfsfélaga þvert á félagið t.d. hlaupahópur, fótbolti í hádeginu og leikjaherbergi
Við hlökkum til að fá umsóknina þína.
Nánari upplýsingar um starfið veita Sigurður Dagur Sturluson ([email protected]) og Helen Breiðfjörð ([email protected]).
Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf sem fyrst. Tekið er á móti umsóknum í gegnum heimasíðu Deloitte, www.deloitte.is, til og með 1. júní 2026.
Vilt þú hafa áhrif? Hjá Deloitte skiptir þitt framlag máli því saman, sem ein heild, vinnum við að því að hafa áhrif á viðskiptavini, samstarfsfélaga og samfélag. Þú færð tækifæri til að taka þátt í fjölbreyttum verkefnum þvert á svið, starfsstöðvar og lönd, auka hæfni þína og færni og hafa góðan stuðning til vaxtar og þróunar í starfi.