Lögfræðingur á sviði virðisaukaskatts
- Full-time
- Field of interest: Tax
- Level of hire: Experienced hire
Company Description
Deloitte Legal er framsækin og alþjóðleg lögmannsstofa sem þjónustar fjölbreyttan hóp fyrirtækja í margvíslegum atvinnugreinum á öllum helstu sviðum fyrirtækjalögfræði. Deloitte Legal er jafnframt samstarfsaðili Deloitte á heimsvísu sem samanstendur af 460.000 sérfræðingum og er leiðandi þjónustuveitandi á sviði endurskoðunar og reikningsskila, upplýsingatækniráðgjafar, fjármálaráðgjafar, áhætturáðgjafar og tengdrar þjónustu.
Deloitte Legal leitar að áhugasömum og metnaðarfullum lögfræðingi í öflugt teymi félagsins, sem samanstendur af hópi lögmanna, lögfræðinga og annarra sérfræðinga. Hjá Deloitte á heimsvísu starfa að auki yfir 2.500 lögfræðingar, sem saman stefna að því að veita framúrskarandi þjónustu.
Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi til að starfa við skattaráðgjöf á sviði virðisaukaskatts og tengdra mála, en jafnframt á öðrum sviðum skattamála.
Job Description
Helstu verkefni lögfræðings:
- Úrvinnsla lagalegra álitaefna og ráðgjöf á sviði virðisaukaskatts.
- Skráningar á virðisaukaskattsskrá.
- Samskipti við stjórnvöld.
- Skattalegar áreiðanleikakannanir.
- Skjalagerð.
- Ráðgjöf við stór sem smá fyrirtæki.
- Samvinna með ýmsum ráðgjafateymum, hér heima og erlendis.
Qualifications
Menntunar- og hæfiskröfur
- Embættis- eða meistarapróf í lögfræði.
- Þriggja ára reynsla af lögfræðistörfum á sviði virðisaukaskatts æskileg.
- Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni.
- Frumkvæði og sjálfstæði í starfi.
- Góð greiningarhæfni og lausnamiðuð hugsun.
- Mjög góð íslensku- og enskukunnátta er skilyrði og geta til að tjá sig, í ræðu og riti.
Additional Information
Starfsþróun þín
- Við upphaf starfs færðu leiðbeinanda sem kemur þér inn í starfið („Buddy-kerfi“)
- Þú færð þjálfun og stuðning frá reyndum sérfræðingum í teyminu þínu
- Þú verður með reyndan Coach sem aðstoðar þig við að þróa þig áfram í starfi
- Þú lærir mikið á þeim fjölbreyttu verkefnum sem þú tekur að þér hjá viðskiptavinum í ólíkum geirum.
- Við styðjum við vöxt þinn með símenntunartækifærum
Að auki bjóðum við upp á:
- Frábært mötuneyti með niðurgreiddum morgunmat og hádegismat.
- Veglegan líkamsræktarstyrk, virkt starfsmannafélag og gott félagslíf
- Styrki til foreldra
- Fyrirmyndar aðbúnað starfsfólks
- Sjálfboðastarf til áhrifa – launaður dagur til að sinna sjálfbærniverkefnum
Við hlökkum til að fá umsóknina þína
Nánari upplýsingar um starfið veitir Haraldur Ingi Birgisson ([email protected]) framkvæmdastjóri og meðeigandi hjá Deloitte Legal. Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf sem fyrst. Tekið er á móti umsóknum í gegnum heimasíðu Deloitte, www.deloitte.is, til og með 16. febrúar nk.
Vilt þú hafa áhrif? Hjá Deloitte skiptir þitt framlag máli því saman, sem ein heild, vinnum við að því að hafa áhrif á viðskiptavini, samstarfsfélaga og samfélag. Þú færð tækifæri til að taka þátt í fjölbreyttum verkefnum þvert á svið, starfsstöðvar og lönd, auka hæfni þína og færni og hafa góðan stuðning til vaxtar og þróunar í starfi.
By clicking the link above or any third-party link within this posting, you are leaving this site and going to a third-party website where the third-party website's terms and privacy policy apply