Bókari
- Full-time
- Field of interest: Finance & Accounting
- Level of hire: AA Entry Level
Company Description
Deloitte er stærsta ráðgjafar- og endurskoðunarfyrirtæki heims, með um 457.000 starfsmenn í yfir 150 löndum. Hjá Deloitte á Íslandi starfa um 360 starfsmenn, allt sérfræðingar á sínum sviðum, þar á meðal endurskoðun, tækniráðgjöf, fjármálaráðgjöf, áhætturáðgjöf, skatta- og lögfræðiráðgjöf og viðskiptalausnum.
Job Description
Deloitte í Vestmannaeyjum leitar að öflugum og drífandi einstakling í spennandi og krefjandi starfs bókara. Við bjóðrum viðskiptavinum hérlendis og erlendis m.a. upp á sjálfvirknivæðingu á fjármálaferlum, bókhalds-, launa- og reikningshaldsþjónustu, rekstrargreiningu og aðra ráðgjöf á sviði fjármálaferla.
Qualifications
Hefðbundinn vinnudagur:
- Umsjón með fjárhagsbókhaldi, launavinnslu og skýrslugerð til stjórnenda
- Vinna að tilfallandi verkefnum fyrir viðskiptavini
- Almenn skrifstofustörf
- Stuðningur við markaðssókn og fylgjast með spennandi tækifærum
- Þátttaka í gæðaferlum
Við leitum að metnaðarfullum einstaklingi með brennandi áhuga á öllu sem við kemur bókhaldi, reikningshaldi og vilja til að þróast í starfi.
Þinn bakgrunnur, reynsla og hæfni:
- Reynsla af bókhaldi, uppgjörum og/eða launavinnslu, kostur en ekki skilyrði
- Reynsla af DK launakerfi, Business Central launakerfi, H3 eða Kjarna
- Viðurkenndur bókari, kostur en ekki skilyrði
- Góð færni í Excel
- Sjálfstæð og öguð vinnubrögð
- Góð samskiptahæfni, jákvæðni og rík þjónustulund
Additional Information
Starfsþróun
- Við starfsupphaf færðu leiðbeinanda sem kemur þér inn í starfi (Buddy-kerfi)
- Þú færð þjálfun og stuðning frá reyndum sérfræðingum í teyminu þínu
- Þú verður með coach sem aðstoðar þig við að þróa þig áfram í starfi
- Þú lærir mikið á þeim fjölbreyttu verkefnum sem þú tekur að þér hjá viðskiptavinum í ólíkum geirum.
- Þú fylgist vel með þínu fagsviði og við viljum að sama skapi styðja við þinn vöxt með símenntunartækifærum
Að auki bjóðum við upp á
- Veglegan líkamsræktarstyrk, virkt starfsmannafélag og gott félagslíf
- Sjálfboðastarfs til áhrifa – launaður dagur til að sinna sjálfbærniverkefnum
- Fyrirmyndar aðbúnað og vinnuaðstöðu
- Niðurgreiddan hádegismat
Við hlökkum til að heyra frá þér!
Nánari upplýsingar um starfið veitir Vigdís Sigurðardóttir ([email protected]) yfirmaður Deloitte í Vestmannaeyjum, og Ásta Þyri Emilsdóttir ([email protected]), Verkefnastjóri í mannauðsdeild. Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf sem fyrst. Tekið er á móti umsóknum í gegnum heimasíðu Deloitte, www.deloitte.is. Umsóknarfrestur er til og með 15. júní
Vilt þú hafa áhrif? Hjá Deloitte skiptir þitt framlag máli því saman, sem ein heild, vinnum við að því að hafa áhrif á viðskiptavini, samstarfsfélaga og samfélag. Þú færð tækifæri til að taka þátt í fjölbreyttum verkefnum þvert á svið, starfsstöðvar og lönd, auka hæfni þína og færni og hafa góðan stuðning til vaxtar og þróunar í starfi.