Deloitte leitar að ráðgjafa í áhætturáðgjöf

  • Full-time
  • Field of interest: Risk Management
  • Level of hire: Graduate hire

Company Description

Deloitte er leiðandi þjónustuveitandi á sviði endurskoðunar og reikningsskila, upplýsingatækniráðgjafar, fjármálaráðgjafar, áhætturáðgjafar, skatta– og lögfræðiráðgjafar og tengdrar þjónustu. Alþjóðlegt net aðildarfélaga okkar og tengdra félaga spannar meira en 150 lönd og landsvæði (sameiginlega vísað til sem „félög Deloitte"). Hjá Deloitte starfa um 460.000 sérfræðingar sem stefna saman að því að veita ávallt framúrskarandi þjónustu.

Job Description

Deloitte leitar að jákvæðum, drífandi og metnaðarfullum liðsfélaga til að bætast í hóp öflugra ráðgjafa Deloitte. Starfið felur í sér að taka þátt í þeim fjölbreyttu verkefnum sem unnin eru undir stjórn reyndari sérfræðinga.  

Verkefnin felast meðal annars í úttektum á eftirlitsþáttum upplýsingakerfa, áhættumati, greiningu á fylgni við lög og reglur tengdum öryggi og rekstri upplýsingakerfa ásamt fjölbreyttri ráðgjöf fyrir fyrirtæki og stofnanir á sviði innra eftirlits og verkferla.    

Starfið hentar vel þeim sem eru að koma nýir út á vinnumarkað eftir nám og vilja byggja upp öflugan starfsferil með aðstoð reyndari sérfræðinga.  

Um teymið  

Teymið samanstendur af reynslumiklum sérfræðingum með fjölbreyttan bakgrunn og reynslu. Við vinnum saman sem ein heild og eigum í góðu samstarfi við  aðra sérfræðinga Deloitte, bæði innanlands og erlendis.    

 

Starfsþróun þín  

Við trúum því að það er ávallt rými til að læra. Það kann enginn allt frá fyrsta degi. Þú færð viðeigandi þjálfun og munt vaxa með teymunum okkar. Þú lærir mikið á þeim fjölbreyttu verkefnum sem þú tekur að þér hjá viðskiptavinum í ólíkum geirum, þú fylgist vel með á þínu fagsviði og við að sama skapi viljum styðja við þinn vöxt með símenntunartækifærum.    

 

Að auki bjóðum við upp á: 

  • Frábært mötuneyti með niðurgreiddum morgunmat og hádegismat.
  • Veglegan líkamsræktarstyrk, virkt starfsmannafélag og gott félagslíf
  • Góðan aðbúnað í nýjum höfuðstöðvum 
  • Sjálfboðastarf til áhrifa – launaður dagur til að sinna sjálfbærniverkefnum

Qualifications

Hæfniskröfur  

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, s.s. viðskiptafræði, tölvunarfræði, verkfræði eða sambærileg menntun 

  • Greiningarhæfni  

  • Mjög góð samskiptafærni og vilji til samvinnu og að stuðla að góðum starfsanda  

  • Fagmennska, sjálfstæð og vönduð vinnubrögð   

  • Þekking á upplýsingatækni kostur  

  • Viðeigandi reynsla sem nýtist í starfi kostur  

  • Gott vald á íslensku og ensku, bæði töluðu og rituðu máli  

Additional Information

Við hlökkum til að fá umsóknina þína. Nánari upplýsingar um starfið veitir Helen Breiðfjörð ([email protected]

Tekið er á móti umsóknum (ferilskrá og kynningarbréfi) til og með 25. maí 2025 

 

Vilt þú hafa áhrif? Hjá Deloitte skiptir þitt framlag máli því saman, sem ein heild, vinnum við að því að hafa áhrif á viðskiptavini, samstarfsfélaga og samfélag. Þú færð tækifæri til að taka þátt í fjölbreyttum verkefnum þvert á svið, starfsstöðvar og lönd, auka hæfni þína og færni og hafa góðan stuðning til vaxtar og þróunar í starfi. 

Privacy Notice