Sérfræðingur í vinnuvernd
- Full-time
Company Description
Alcoa Fjarðaál leitar að jákvæðum og drífandi einstaklingi í starf sérfræð- ings í vinnuvernd. Markmið starfsins er að koma í veg fyrir atvinnutengda sjúkdóma með því að tryggja öruggt og heilsusamlegt starfsumhverfi í samræmi við vinnuverndarlög og staðla Alcoa. Sérfræðingurinn starfar í öflugu umhverfis-, heilsu- og öryggisteymi Fjarðaáls.
Job Description
Ábyrgð og verkefni
- Meta heilsufars- og vinnuvistfræðilega áhættuþætti í starfsumhverfi
- Greina niðurstöður mælinga og útbúa skýrslur
- Umsjón með mælitækjum
- Vinna úr niðurstöðum reglubundinna heilsufarsskoðana starfsmanna
- Gera tillögur að úrbótum á starfsumhverfi og verklagi
- Styðja starfsfólk í að þróa bætt verklag
- Þjálfun og fræðsla í vinnuvernd
- Taka þátt í úttektum á umhverfi, heilsu og öryggi
Qualifications
Kröfur um hæfni
- Háskólamenntun á heilbrigðissviði
- Reynsla af vinnuvernd æskileg
- Færni í mannlegum samskiptum og teymisvinnu
- Skipulagshæfileikar og nákvæmni
- Góð íslensku- og enskukunnátta
- Góð tölvukunnátta